Flýtilyklar
-
Vöfflukaffi á sumardaginn fyrsta
Sjálfstæðismenn á Akureyri munu fagna sumarkomu með því að koma saman í vöfflukaffi í Geislagötu 5 á sumardaginn fyrsta, 25. apríl, kl. 14:00 til 16:00. Hvetjum alla sjálfstæðismenn til að mæta í vöfflukaffi og fagna sumarkomu með okkur. -
Umræðufundur með Guðrúnu Hafsteinsdóttur 23. apríl
20.04.2024 | FréttirMálfundafélagið Sleipnir heldur umræðufund í Geislagötu 5 þriðjudaginn 23. apríl kl. 20:00. Guðrún Hafsteinsdóttir, dómsmálaráðherra, flytur framsögu um stöðuna í málaflokki sínum og stöðuna í pólitíkinni og svarar að því loknu fyrirspurnum. Heitt á könnunni - allir velkomnir. -
Umræðufundur með Ásmundi Friðrikssyni 20. apríl
17.04.2024 | FréttirMálfundafélagið Sleipnir boðar til umræðufundar í Geislagötu 5 (gengið inn að norðan) laugardaginn 20. apríl kl. 10:30. Ásmundur Friðriksson, alþingismaður, flytur framsögu um stjórnmálaviðhorfið og svarar fyrirspurnum. Allir velkomnir - heitt á könnunni. -
Mikið fjölmenni á fundi með Bjarna
13.04.2024 | FréttirMikið fjölmenni, um 800 sjálfstæðismenn, var á fundi sem Bjarni Benediktsson formaður Sjálfstæðisflokksins og forsætisráðherra boðaði til á Hilton Nordica-hótelinu í Reykjavík. Ráðherrar flokksins ávörpuðu fundinn auk ritara flokksins og formanni þingflokksins -
Bæjarmálafundur 15. apríl
12.04.2024 | FréttirBæjarmálafundur Sjálfstæðisflokksins á Akureyri verður haldinn í Geislagötu 5 mánudaginn 15. apríl kl. 17:30. Farið yfir helstu mál í bæjarstjórn. Þórhallur Harðarson, nefndarmaður í umhverfis- og mannvirkjaráði, fer yfir helstu verkefni UMSA á árinu 2024. Heimir Örn Árnason fer yfir ársreikning fyrir árið 2023 og helstu verkefni á næstu tveimur árum. Allir velkomnir. -
Fundur með Þórdísi Kolbrúnu, Njáli Trausta og Berglindi Ósk 11. apríl
10.04.2024 | FréttirSjálfstæðisfélag Akureyrar heldur fund í Geislagötu 5 fimmtudaginn 11. apríl kl. 20:00. Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, utanríkisráðherra og varaformaður Sjálfstæðisflokksins, Njáll Trausti Friðbertsson, oddviti Sjálfstæðisflokksins í Norðausturkjördæmi, og Berglind Ósk Guðmundsdóttir, alþingismaður, flytja framsögu og svara fyrirspurnum. Heitt á könnunni - allir velkomnir -
Bjarni Benediktsson verður forsætisráðherra
09.04.2024 | FréttirBjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, verður forsætisráðherra í ríkisstjórn Sjálfstæðisflokksins, Framsóknarflokksins og VG. Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, varaformaður Sjálfstæðisflokksins, tekur að nýju við embætti utanríkisráðherra.
Nýjar greinar
-
Þegar á móti blæs
Berglind Ósk Guðmundsdóttir, alþingismaður, skrifar um ríkisfjármálin eftir uppstokkun í ríkisstjórn. "Á þessum tímamótum þurfum við að skerpa betur á hlutverki ríkisins og tryggja að fjármunir almennings nýtist með sem hagkvæmustum hætti og fari raunverulega í þau verkefni sem snúa að nauðsynlegri þjónustu við fólkið í landinu." -
NATÓ í 75 ár - erindið aldrei brýnna
04.04.2024 | GreinarÍ dag eru 75 ár síðan Bjarni Benediktsson eldri undirritaði Atlantshafssáttmálann fyrir Íslands hönd. Ísland var meðal tólf stofnríkja Nató-bandalagsins, en á þeim tíma voru hörmungar seinni heimsstyrjaldarinnar enn í fersku minni og vaxandi spennu farið að gæta milli lýðræðisríkja í vestri og alræðisríkja undir ægivaldi Sovétríkjanna í austri. Bjarni Benediktsson, utanríkisráðherra, fer yfir mikilvægi Nató í grein. -
Óboðleg vinnubrögð
14.03.2024 | Greinar26 oddvitar Sjálfstæðisflokksins í sveitarstjórnum landsins skrifa í dag grein um óboðleg vinnubrögð Heiðu Bjargar Hilmarsdóttur, formanns Sambands íslenskra sveitarfélaga, í nýlokinni kjarasamningagerð. Heimir Örn Árnason, oddviti Sjálfstæðisflokksins á Akureyri, er einn þeirra sem stendur að greininni. -
Akureyri stendur ekki í vegi fyrir kjarasamningum
06.03.2024 | GreinarHeimir Örn Árnason, oddviti Sjálfstæðisflokksins á Akureyri, fjallar í grein um að Akureyrarbær standi ekki í vegi fyrir undirskrift á kjarasamningum. Sveitarfélögin geri sér grein fyrir því að allir aðilar þurfi að koma að borðinu í kjaraviðræðum til að ná grunnmarkmiðunum, sem er að bæta kaupmátt í landinu - aðgerðir sem ná niður verðbólgu og gefa grundvöll til vaxtalækkunar eru lykilatriði í því efnum. -
Halldóri Blöndal þakkað
06.03.2024 | GreinarHalldór Blöndal, fyrrum oddviti Sjálfstæðisflokksins í Norðausturkjördæmi, lætur í dag af formennsku í SES - Samtökum eldri sjálfstæðismanna. Í grein fer Bjarni Benediktsson, utanríkisráðherra og formaður Sjálfstæðisflokksins, yfir pólitískt starf Halldórs gegnum árin og forystu í SES í 15 ár. -
Í krafti stærðar sinnar
07.02.2024 | GreinarBerglind Ósk Guðmundsdóttir, alþingismaður Sjálfstæðisflokksins í Norðausturkjördæmi, skrifar um tækifærin sem liggja í sameiningu Háskólans á Akureyri og Háskólans á Bifröst sem auka mun gæði og framboð náms og efla byggðahlutverk háskólans í krafti stærðar sinnar.