22. apríl 2024

Vöfflukaffi á sumardaginn fyrsta

Sjálfstæðismenn á Akureyri munu fagna sumarkomu með því að koma saman í vöfflukaffi í Geislagötu 5 á sumardaginn fyrsta, 25. apríl, kl. 14:00 til 16:00.

Hvetjum alla sjálfstæðismenn til að mæta í vöfflukaffi og fagna sumarkomu með okkur.

Gleðilegt sumar.