Málfundafélagið Sleipnir


Málfundafélagið Sleipnir var stofnað 26. mars 1940

Stjórn kjörin 29. janúar 2025

Formaður

Stefán Friðrik Stefánsson | 847 8492

Varaformaður

Ragnar Ásmundsson | 693 9172


Ritari

Jón Orri Guðjónsson | 869 4610


Meðstjórnendur
Harpa Halldórsdóttir | 691 6710

Jón Oddgeir Guðmundsson | 894 4301


Varastjórn

Davíð Þ. Kristjánsson | 896 4297

Karl Guðmundsson | 898 0423 

Karl Ágúst Gunnlaugsson | 691 6710



Lög Málfundafélagsins Sleipnis

I. kafli: Nafn og tilgangur

1. gr.
Félagið heitir Málfundafélagið Sleipnir, og starfar sem Málfundafélag Sjálfstæðisflokksins á Akureyri. Félagið hefur aðild að Verkalýðsráði Sjálfstæðisflokksins.

2. gr.
Markmið félagsins er að tala máli sjálfstæðisstefnunnar, sem hefur einstaklings- og atvinnufrelsi að leiðarljósi, og berjast fyrir hagsmunum Akureyrar.

3. gr.

Markmiðum þessum hyggst félagið ná með því að fylgja Sjálfstæðisflokknum eindregið að málum, styðja hann við kosningar og vinna að hugsjónum hans. Félagið starfar eftir skipulagsreglum Sjálfstæðisflokksins.

II. kafli: Meðlimir


4. gr.
Einstaklingar með lögheimili í sveitarfélaginu Akureyri, sem ekki eru félagar í öðrum stjórnmálaflokkum en Sjálfstæðisflokknum, geta sótt um aðild að félaginu. Inntökubeiðnir skulu meðhöndlaðar í samræmi við skipulagsreglur Sjálfstæðisflokksins.


5. gr.
Stjórn félagsins getur vikið úr félaginu hverjum þeim sem að hennar áliti brýtur lög félagsins eða vinnur gegn stefnu þess. Til þess þarf öll atkvæði stjórnar. Áfrýja má slíkri ákvörðun til stjórnar fulltrúaráðs sjálfstæðisfélaganna á Akureyri.

III. kafli: Stjórn félagsins og starfsemi


6. gr.
Málefni félagsins annast stjórn félagsins, nefndir sem stjórnin kýs sér til aðstoðar, fulltrúaráð og almennir fundir.


7. gr.
a) Í stjórn félagsins sitja 5 menn að formanni meðtöldum. Formaður skal kjörinn sérstaklega. Stjórnin er kjörin á aðalfundi félagsins til eins árs í senn. Einnig skal kjósa þrjá í varastjórn félagsins.

b) Á fyrsta stjórnarfundi eftir aðalfund skal stjórnin skipta með sér verkum. Kosið skal um embætti varaformanns og ritara.

c) Láti formaður af embætti tekur varaformaður sjálfkrafa við formennsku. Víki stjórnarmaður skal fyrsti varamaður taka fast sæti sem aðalmaður í stjórn. Taki enginn varamanna sæti skal boða til félagsfundar og kjósa nýjan stjórnarmann og varamenn.


8. gr.
Stjórnarfundi skal halda svo oft sem þurfa þykir. Formaður boðar til þeirra og stýrir þeim nema annað sé ákveðið. Stjórnarfundi skal að jafnaði boða með sólarhrings fyrirvara. Stjórnarfundur er löglegur er meirihluti stjórnarmanna situr fund. Óski fjórðungur stjórnar eftir stjórnarfundi ber að halda hann innan viku frá því formanni berst slík ósk. Öllum stjórnarmönnum er heimilt að leggja fram ályktanir á stjórnarfundi. Ályktanir í nafni félagsins verða að hljóta a.m.k. samþykki 3 af 5 stjórnarmönnum félagsins.


9. gr.
Aðalfund félagsins skal halda árlega og ekki síðar en 15. febrúar og skal boða til hans með minnst viku fyrirvara. Meirihluti stjórnar ákveður fundartíma aðalfundar. Allar kosningar á aðalfundi skulu vera bundnar og skriflegar sé þess sérstaklega óskað. Einfaldur meirihluti ræður úrslitum mála og kjöri á aðalfundinum, sbr. þó 14. gr. Verði atkvæði jöfn, ræður hlutkesti. Dagskrá aðalfundar skal vera sem hér segir:


      1) Skýrsla stjórnar
      2) Umræða um skýrslu stjórnar
      3) Lagabreytingar
      4) Kosning formanns
      5) Kosning stjórnar og varastjórnar
      6) Kosning í fulltrúaráð og kjördæmisráð
      7) Önnur mál

Samþykki aðalfundar þarf til við breytingu á röðun dagskrár.


10. gr.

Stjórn félagsins er sjálfkjörin í fulltrúaráð sjálfstæðisfélaganna á Akureyri, skv. lögum fulltrúaráðs.

11. gr.
Stjórn félagsins skal tryggja starfsemi sem líkleg er til að efla félagið og styrkja málstað þess. Fund skal halda ef minnst 10 félagsmenn krefjast þess í bréfi til stjórnarinnar. Fundir félagsins skulu vera opnir og boðaðir eins vel og kostur er á.

IV. kafli: Tekjur


12. gr.
Árgjald félagsmanna er frjálst.


13. gr.
Reikningstímabil félagsins er almanaksárið.


V. kafli: Lagabreytingar


14. gr.
Lögum þessum má aðeins breyta á aðalfundi og þarf 2/3 atkvæða allra fundarmanna til að breytingin nái fram að ganga.


15. gr.
Tillögur um lagabreytingar skulu hafa borist stjórn félagsins eigi síðar en fimm sólarhringum fyrir aðalfund.


16. gr.
Lög þessi öðlast þegar gildi.

 


Samþykkt á aðalfundi 5. febrúar 2015