12. apríl 2024

Bæjarmálafundur 15. apríl

Bæjarmálafundur Sjálfstæðisflokksins á Akureyri verður haldinn í Geislagötu 5 (gengið inn að norðan) mánudaginn 15. apríl kl. 17:30.

Farið verður yfir helstu mál sem verða á  dagskrá bæjarstjórnarfundar .   Þórhallur Harðarson nefndarmaður í umhverfis- og Mannvirkjaráði fer yfir helstu verkefni UMSA á árinu 2024.  Heimir Örn Árnason fer yfir ársreikning fyrir árið 2023 og helstu verkefni á næstu tveimur árum. 

Fundarstjóri: Heimir Örn Árnason, formaður bæjarráðs og oddviti Sjálfstæðisflokksins á Akureyri

Allir velkomnir - heitt á könnunni