Gleðilega töfrandi kosningabaráttu

Snörp og spennandi kosningabarátta er að hefjast og eru stjórnmálaflokkar í óðaönn að draga fram helstu stefnur og forgangsmál. Ýmislegt bendir til þess, eins og oft áður, að komandi kosningar muni að þónokkru leyti snúast um efnahagsmál og fjármál heimila og fyrirtækja. Verðbólga og vextir bíta fast og fólk vill svör um framtíðina. Eðlilega.

Við slíkar kringumstæður skapast frjór jarðvegur fyrir ýmsar misskynsamlegar hugmyndir. Umræða um skattahækkanir á einstaklinga og fyrirtæki er nú þegar farin að láta á sér kræla og mætti skilja sem svo að möguleikarnir séu óþrjótandi á hlaðborði nýrra skatta. Á hinn bóginn vantar aldrei hugmyndir um ný ríkisútgjöld og loforð um stóraukin framlög til allra opinberra kerfa án nokkurra áætlana um hvernig nýta eigi fjármuni betur. Svo má ef til vill búast við málflutningi um hvernig aðild að ESB og upptaka evru bætir hér lífsgæði nánast á einu augabragði.

Allt eru þetta þekktar hugmyndir, jafnvel settar fram sem einfaldar töfralausnir, en reynslan sýnir að þær eru hvorki raunhæfar né líklegar til árangurs.

Lykilverkefni stjórnmálanna næstu misseri er að tryggja umgjörð sem styður við lækkun verðbólgu og vaxta og skapa þannig skilyrði fyrir áframhaldandi lífskjarasókn. Ég trúi því að fátt hafi meiri áhrif á heimilisbókhald meginþorra fjölskyldna og rekstur fyrirtækja.

Vaxtalækkunarferli er hafið. Eingöngu með ábyrgð og aðhaldi í ríkisfjármálum og skilvirkni í ríkisrekstri mun vaxtalækkunarferlið halda áfram. Hvorki stórauknir skattar né stóraukin ríkisútgjöld hjálpa til þar.

Við þurfum stöðugleika, fyrirsjáanleika og skapa aðstæður sem þrengja ekki að fólki og fyrirtækjum. Við þurfum að ýta undir enn frekari verðmætasköpun sem er grunnurinn að öflugu velferðar- og heilbrigðiskerfi, enda er nú sem fyrr nauðsynlegt að hlúa að þeim sem höllum fæti standa. Þetta eru engar töfralausnir, enda duga þær sjaldnast til að leysa flókin viðfangsefni.

Gleðilega kosningabaráttu!

Höfundur skipar 4. sæti á lista Sjálfstæðisflokksins í Norðausturkjördæmi.


Svæði

Sjálfstæðisflokkurinn á Akureyri  | Aðsetur: Kaupangi v/Mýrarveg  |  Ritstjóri Íslendings: Stefán Friðrik Stefánsson  |  XD-Ak á facebook