Umræðufundur með Ásmundi og Kristni Karli 18. nóvember

Málfundafélagið Sleipnir boðar til umræðufundar í Geislagötu 5 (gengið inn að norðan) laugardaginn 18. nóvember kl. 10:30. Ásmundur Friðriksson, alþingismaður, og Kristinn Karl Brynjarsson, formaður Verkalýðsráðs Sjálfstæðisflokksins, flytja framsögu um stjórnmálaviðhorfið og svara fyrirspurnum.

Ásmundur mun fara yfir stöðuna á Suðurnesjum eftir jarðhræringar sem skekið hafa Grindavík og þær áskoranir sem framundan eru fyrir íbúana og atvinnulífið, samfélagið allt.

Fundarstjóri: Stefán Friðrik Stefánsson, formaður Sleipnis 

Allir velkomnir - heitt á könnunni.


Svæði

Sjálfstæðisflokkurinn á Akureyri | Geislagötu 5 | Ritstjóri Íslendings: Stefán Friðrik Stefánsson | XD-AK | XD-Norðaustur